Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Christian Freyr
Christian Freyr

Júlí 2011

0 | 0 | 2.8.2011 09:23:41 #

Christian Freyr 5 ára

0 | 0 | 22.3.2011 22:07:36 #

Christian Freyr 4 ára =o)

0 | 0 | 29.3.2010 10:36:30 #

Christian Freyr 3 ára :0)

0 | 0 | 8.3.2009 22:47:32 #

Hæ hæ ég er komin með eina síðu fyrir öll börnin mín þar sem ég nenni ekki lengur að vera með 3 síður í gangi! slóðin er:www.barnaland.is/barn/84514 endilega skoðið og kvittið í gestabókina á nýju síðunni þeirra....

Kveðja Díana Björg =o)

0 | 6.1.2009 22:59:16 #

Mamma var að setja inn restina af myndunum af síðasta ári.. Á síðurnar okkar allra hér á barnalandi... Í albúm: jólin 2008 og áramót 2008-2009
0 | 4.1.2009 13:59:28 #

Mamma var að bæta við myndum í Desember albúmin og svo setti hún ný albúm "jólin 2008" á allar síðurnar :0)

Endilega skoðið og kvittið í gestabækurnar :0)

0 | 30.12.2008 10:01:45 #

JÓLIN 2008 OG ÁRAMÓTIN 2008-2009

0 | 0 | 30.12.2008 09:48:58 #

Nýjar myndir í Desember 2008 albúmi á öllum síðunum... =o)

Munið að kvitta í gestabækurnar ;o)

0 | 16.12.2008 11:01:56 #

DESEMBER 2008

0 | 0 | 16.12.2008 10:49:28 #

Hæhæ, ég er ekki að standa mig í að skrifa hér inn fyrir börnin mín.. ég held að ég verði bara að setja mér það sem áramótaheit að vera dugleg að skrifa fyrir þau!!!

En ég ætla bara að skrifa eina færslu og setja hana inn á síðuna hjá Dísellu Carmen og Christiani Frey...

En eins og þið vitið þá er jólasveinninn byrjaður að gefa í skóinn og Dísella er búin að fá litla dúkku en fékk smá bréf með henni sem hún vill nú ekkert tala um! svo er hún búin að fá pez kall og í morgun fékk hún dvd mynd (Gauragangur í sveitinni) og kex með henni. Christian Freyr er líka búin að vera góður svo hann er búinn að fá trukk (flutningabíl) og svo fékk hann pez kall og í morgun fékk hann dvd mynd (Elías mynd nr 4).. Þau eru ekkert smá ánægð með þetta sem þau eru búin að fá...  Ég er samt ekki viss um að þau fái eitthvað flott á morgun það er að segja ef þau fá þá eitthvað. Þau voru nefnilega ekkert mjög góð seinnipartinn og ætluðu svo ekkert að fara að sofa í kvöld. Ég held samt að Dísella Carmen gæti kannski fengið eitthvað enn ég er ekki jafn viss um hann Christian Frey....

En í gær voru þau í pössun hjá ömmu þeirra og afa þeirra í gær og voru svo góð allan tímann.

Svo í dag fór ég og pabbi (Sveinbjörn afi) með þau í bæinn þar sem það var leikhúsferð hjá leikskólanum! Það var farið og horft á leikritið: Lápur, Skrápur og jólaskapið. Þeim fannst mjög gaman og við vorum svo heppin að sitja á fremsta bekk svo þau sáu allt mjög vel. :o)

Svo er bara vika  eftir í leikskólanum og þá eru þau komin í jólafrí til 5. janúar..

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna!

Kveðja mamman :0)

0 | 14.12.2008 23:48:18 #

Restin af Nóvembermyndunum eru komnar inn á allar síðurnar... =o)
0 | 2.12.2008 16:24:40 #

Hæ hæ nú ætla ég (Díana) að skrifa um öll börnin og setja þessa færslu inn hjá þeim öllum! (Svo þið þurfið ekki að lesa á öllum síðunum)!

En ég vildi bara segja ykkur frá síðustu viku...

Á laugardaginn 22. Nóvember fórum við öll fjölskyldan í bæinn með 11 ferðinni. Það var byrjað á því að versla smá. Svo um 3 fórum við með Victoríu Líf og Töru Naomí í pössun til Ellenar og Grétars. Af því að við Hermann fórum með Dísellu Carmen og Christian Frey í Sjallann á Pál Óskar. Sjallinn opnaði kl 15:30 og við mættum þá en Palli kom ekki að spila fyrr en kl 16:00 og honum Christiani fannst mjög erfitt að bíða eftir honum. Við skemmtum okkur mjög vel og svo var að sjálfsögðu farið í röð til að fá áritað plakat með Palla!

Eftir Sjalla ferðina fórum við beint til Ellenar og Grétars.

Svo eftir kvöldmat fórum við Hermann til Símonar og Díönu þar sem við vorum að fara í Sjallann um kvöldið á Pál  Óskar með þeim, Inga, Dagný og mömmu! Ellen og Grétar voru svo góð að passa öll börnin!

Þeim fannst mjög gaman að fá að gista hjá Ellen og Grétari (veit nú reyndar ekkert hvað tvíburunum fannst). :o)

Svo fórum við heim með 3 ferðinni á sunnudeginum..

Á mánudeginum var Dísella Carmen heima þar sem hún var orðin lasin. Með hita, ljótan hósta, hálsbólgu og kvef... Svo á þriðjudagsmorgninum var Victoría Líf komin í sama pakka og Dísella en hún slapp reyndar við hóstann. Seinnipartinn var svo Christian Freyr orðinn lasinn og svo varð hún Tara Naomí veik á Miðvikudagsmorgninum (minnir það, kannski var það á þriðjudagskvöldinu. Allt komið í rugl í hausnum á mér)...

En Dísella er orðin mun hressari en er ennþá með ljóta hóstann og mikið kvef. Christian er orðinn aðeins skárri en mætti vera betri. Victoría og Tara eru enn frekar slappar!

Já og svo gleymdi ég að Hermann er líka veikur.. Svo það er sko stuð á heimilinu.. En ég hef sem betur fer sloppið og vona svo innilega að ég sleppi...

Kveðja

Díana Björg..

0 | 28.11.2008 00:16:50 #

Mamma var að setja inn fleiri Nóvember myndir :)

munið að kvitta ;)

0 | 21.11.2008 14:27:52 #

Mamma var að setja inn gullkorn hjá mér =o)

kv. Christian Freyr :0)

0 | 19.11.2008 13:23:03 #

Mamma setti inn nýjar myndi í gær, Nóvember 2008... =o)

Endilega skoðið og muna að kvitta ;0)

0 | 16.11.2008 23:55:23 #

NÓVEMBER 2008

0 | 0 | 16.11.2008 01:13:59 #

Hæ hæ... Nú hef ég sko fréttir.. =o)

Í dag fórum ég og Dísella í bæinn með pabba og mömmu... Helena amma var svo góð að passa litlu systur mínar á meðan...

Ég fór í fyrsta tannlækna tímann minn í dag og ég var pínu stífur en en tannlæknirinn fékk að gera allt sem hún þurfti að gera. Tannlæknirinn minn heiti Ásta og hún er rosalega góð, en ég var pínu feiminn! Hún skoðaði tennurnar mínar og að sjálfssögðu var engin skemmd hjá mér. Hún setti flúor á jaxlana mínar og hún átti sko skrítinn tannbursta!!! Ég var nógu duglegur hjá henni að ég fékk að velja mér verðlaun og ég valdi rosalega sko flugvél...

Við fórum svo á Bryggjuna og fengum okkur að borða þegar við máttum borða! Og ég, pabbi og Dísella fengum okkur pitsu en mamma fékk sér hvítlauksbrauð... Okkur fannst þetta geðveikt gott, nema það var bara hægt að fá Florida safa og mér fannst hann VONDUR...

Svo fórum við í jólahúsið þegar það opnaði, okkur fannst það svoooo gaman! Ég fékk að sjá Grýlu og ég var ekkert smá hræddur við hana. Og Dísellu var ekki alveg sama þegar hún sá hana! Svo við vildum bara vera á efri hæðinni.. Við Dísella fengum að kaupa okkur pínu nammi í jólahúsinu sem við megum borða á morgun. :o)

Svo var að sjálfsögðu farið í nokkrar búðir og ég sá margt sem mig langaði svo í og Dísella sá ýmislegt líka en við fengum nú ekkert sem við vildum.. Við sættum okkur bara við það og vorum góð!

Við fórum svo heim með 7 ferðinni og við Dísella  fengum að gista hjá Helenu ömmu og Sveinbirni afa! Mér fynnst svo gott og gaman að gista hjá þeim. =o) 

Kveðja

Christian Freyr :o)

0 | 14.11.2008 23:31:17 #

Mamma var að setja inn restina af Október myndunum!!!

Endilega skoðið og kvittið :0)

0 | 3.11.2008 11:25:22 #

Mamma var að setja inn myndir frá því þegar við Dísella Carmen fórum í íþróttahúsið á miðvikudaginn síðasta. Það var boðið öllum leikskólakrökkunum að prufa að koma að gera æfingar og svo á að fara að hafa íþróttaskóla einu sinni í viku. :0)

Mér fannst geðveikt gaman... =o)

0 | 27.10.2008 14:02:20 #